mánudagur, júní 19, 2006

Eiríkur rauði

Það var að bætast við nýr meðlimur í familíuna!!!
Við vorum að eignast folald í vikunni sem leið... Na-na-na-na
Stærð og þyngd er erfitt að segja til um því merin er ekkert á því að leyfa okkur að mæla það og vigta, nafnið hefur samt verið ákveðið og mun hann vera kallaður Eiríkur Rauði þar sem þetta er rautt hestfolald...
Pony


Fíflið ég gleymdi myndavélinni heima þannig að myndir verða birtar seinna.

Þar til næst...

þriðjudagur, júní 13, 2006

Allt á rúst

Það styttist alveg ískyggilega í Danmörk... Leigendurnir flytja inn 1. júlí og ég er á leinni til Norge í næstu viku Thumbs Up , þannig að það er verið að pakka á fullu (ég nenni því bara ekki í augnablikinu og er búin með öll dagblöðin...) við munum ráðast inná systir hans Hilmars þar til við förum út, með allt okkar hafurtask og litlu fjölskylduna okkar. Þannig að kveðju-grillveislan sem ég hafði hugsað mér að halda dettur víst uppfyrir No .
Anywho, það er best að fara og banka uppá hjá nágrönnunum og sníkja gömul dagblöð...