föstudagur, september 15, 2006

Þið segið það!!!

Hvað getur maður sagt??? Tónleikarnir voru geðveikir, veðrið var geðveikt, fjöldinn af fólki var geðveikur... og rétt áður en þeir stigu á sviðið þurfti ég geðveikt að pissa... og við þurftum að troðast í gegnum 85.000 manna þvögu :o) Það gekk svona lala... Hilmar fékk olnbogaskotin alveg í röðum þegar við vorum að troðast til baka en um leið og ég fór á undan þá hætti það...
Það borgar sig að vera lítil og sæt ;o)
Annars er einhver hitabylgja að fara hérna yfir þessa dagana og hitinn er yfir 20 gráður og sól, þannig að maður er eins léttklæddur og mögulegt er, allir gluggar opnir og allir geitungarnir hópast inn í kaffi til okkar, ekki það að þeir séu velkomnir...
Annað kvöld er svo nýbúaball hjá Íslendingafélaginu hérna út á skólabar, það verður strákapartý hérna hjá okkur og við stelpurnar förum í stelpupartý í hinum endanum...
Ég lofa að taka með mér myndavélina þannig að það verða kannski einhverjar nýjar myndir eftir helgina.

6 Comments:

At 17 september, 2006 00:46, Blogger Hulda R. Jónsdóttir said...

Thad er lika eitthvad ad hitna herna, finnst mer... Tho eg hafi enga vedurspa bakvid thad..! :D

Thad var sol og blida her i dag en svo for eg til Oslo og tha var bara skyjad og leidindi.. :S
Hvada hvada...

SHRN,
Norski Slavo

 
At 29 september, 2006 01:35, Anonymous Nafnlaus said...

hahh, fundin!!
ég vissi það, þið gátuð ekki bara verið flutt til útlanda, og ekki verið með neina bloggsíðu.
Hér í München er annars engin hitabylgja, bara rigning og leiðindi, svo maður fer bara á októberfest í staðinn.

Annars er að alveg magnað hvað maður kann í tungumálunum sem var þröngvað í hausinn á manni í skólanum. Þegar valið stendur á milli að segja það á dönsku(eða þýsku) eða segja ekki neitt, þá kemur eitt og annað í ljós.

Skemmtið ykkur vel í baunaveldi
Hilsen
Indriði

 
At 30 september, 2006 20:03, Blogger Hanna said...

Gaman að heyra í þér frændi.
Danir nenna nú ekkert að bíða eftir einhverju októberfest, þannig að þeir eru bara með septemberfest til að hita sig upp. Undanfarinn mánuð hefur maður getað farið í Bilka og drukkið sig fullan á bjórkynningum... ;o)

 
At 30 september, 2006 20:05, Blogger Hanna said...

og má ég bæta við: Geggjuð axlabönd!!!

 
At 13 október, 2006 17:57, Blogger beast said...

Hæ,var bara á blogg rúntinum og datt í hug að líta við hjá þér ;) Kv. Tóta

 
At 29 október, 2006 14:00, Blogger Hulda R. Jónsdóttir said...

Á ekkert að fara að blogga, kjélling..!?!?!? :D

 

Skrifa ummæli

<< Home