föstudagur, september 15, 2006

Þið segið það!!!

Hvað getur maður sagt??? Tónleikarnir voru geðveikir, veðrið var geðveikt, fjöldinn af fólki var geðveikur... og rétt áður en þeir stigu á sviðið þurfti ég geðveikt að pissa... og við þurftum að troðast í gegnum 85.000 manna þvögu :o) Það gekk svona lala... Hilmar fékk olnbogaskotin alveg í röðum þegar við vorum að troðast til baka en um leið og ég fór á undan þá hætti það...
Það borgar sig að vera lítil og sæt ;o)
Annars er einhver hitabylgja að fara hérna yfir þessa dagana og hitinn er yfir 20 gráður og sól, þannig að maður er eins léttklæddur og mögulegt er, allir gluggar opnir og allir geitungarnir hópast inn í kaffi til okkar, ekki það að þeir séu velkomnir...
Annað kvöld er svo nýbúaball hjá Íslendingafélaginu hérna út á skólabar, það verður strákapartý hérna hjá okkur og við stelpurnar förum í stelpupartý í hinum endanum...
Ég lofa að taka með mér myndavélina þannig að það verða kannski einhverjar nýjar myndir eftir helgina.

föstudagur, september 01, 2006

Rolling Stones

Þá er það ákveðið... við erum á leiðinni á Stones.
 Posted by Picasa