laugardagur, október 13, 2007

Gleymdist!!!

Skvísan er komin með sína eigin heimasíðu á babyverden.dk
Slóðin er http://www.babyverden.dk/barn/66760 og leyniorðið er nafnið á kisunni sem við áttum. Þeir sem ekki muna það verða bara að hafa samband við okkur... ;o)

laugardagur, september 01, 2007

Myndavélahallæri

Jæja

frá því að erfinginn fæddist hefur fólk verið að hafa samband við mig og krafist þess að ég taki myndir í tíma og ótíma af henni og seti inn á netið jafn óðum en þetta tekur allt tíma og góða myndavél sem ég á EKKI.

Það sem ég er að reyna að segja er að mér langar í nýja myndavel svo ég geti tekið enn betri og fleiri myndir af skvísunni og er ég þá að tala um almennilega professional myndavél...
Öll framlög eru vel þegin.

Kv. Hilmar myndaóði

föstudagur, ágúst 31, 2007

Prinsessan komin

Jæja þá er frumburðurinn kominn það er stór og myndarleg stúlka sem vóg 4260 gr og var 53 cm á lengd. Fæðingin var nógu löng og erfið, hríðarnar byrjuðu á mánudagsmorgninum daginn sem ég átti að byrja í skólanum og mesta lagi 15 min millibili. Fyrst fórum við uppá spítala kl 8.00 um morguninn og vorum send heim með verkjatöflur um 8.30. Fyrsti skóladagurinn hjá mér var með hlaupum á milli skólans og heim. Svo um 15:30 fórum við aftur uppá spítala og þá var Ólöf lögð inn og hríðarnar jókust jafnt og þétt fram á kvöld. Rétt fyrir 23.00 var okkur tilkynnt að útvíkkunin væri orðin 9 en kl. 23.00 voru vaktaskipti hjá ljósunum þá vorum við svo heppin að fá ljósmóðurinna okkar sem Ólöf var búinn að vera hjá í skoðunum en hún var með slæmar fréttir, hún sagði við okkur að útvíkkuninn væri kominn niður í 5-6 en samt nær 6, þá var Ólöf alveg búin á því líkamlega og bað um eitthvað verkjastillandi og fékk þá mænurótardeyfingu sem sló strax á hríðarnar og var tengd við allskonar tæki og tól. Þegar ljósmóðirinn kom aftur inn um 01:00, var útvíkkuninn að nálgast 7 en púlsinn hjá prinsessunni var kominn upp fyrir eðlileg mörk og var þá kallað á barnalækni sem mælti með því að fara í "bráðakeisara" í staðinn fyrir að bíða í minnsta kosti 4-5 tíma og óvíst hvernig það færi með prinsessuna. Með því að ákveða að fara í keisarann svona snemma þá gat Ólöf verið vakandi í keisaranum og Hilmar verið viðstaddur á meðan. Kl. 02:43 aðfaranótt þriðjudagsins heyrðist í skurðlækninum: "Her kommer et stort hoved" og stuttu seinna heyrðist "Et stort barn" og þá var prinsessan loksins komin í heiminn, hraust og flott eftir sólahrings erfiði.

P.S. Það eru komnar myndir inn á myndasíðuna...

Kveðja
Hilmar

miðvikudagur, janúar 24, 2007

1 önnin búinn......

jæja kominn í frí. Fyrsta önnin búin og aðeins sex eftir og núna er bara að finna sér eitthvað að gera hérna í þessu baunalandi, ÞAÐ ER EKKERT AÐ GERA...........

kv.hilli

fimmtudagur, nóvember 16, 2006

Veðrið

Það er ekki lengur kalt... kannski er danski veturinn bara búinn... þannig að ég kemst af án húfu enn um sinn.